15.12.2010 | 00:23
Golfarar sameinumst.
Hér er gert út um september golfið. Allir golfara Íslands hljóta að vera andvígir þessu. Hver vill vera í skólastofu eða í vinnu á meðan sólin skín og labba svo út í myrkrið. Auðvitað á að flýta klukkunni og þar með stækka gluggann þar sem maður kemst í golf.
|
Vilja seinka klukkunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Albert Guðmann Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 6680
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

fannarh
harpam
altice
zsigger

Athugasemdir
Væri þá ekki best að skólastarf og vinna fari bara fram á nóttinni þannig að hægt sé að gera eitthvað skemmtilegt á daginn? Auðvitað eigum við að hafa klukkuna sem næst hinum náttúrulega tíma, það er síðan samfélagsins og hvers og eins að skipuleggja hvernig við skipuleggjum nýtingu sólarhringsins.
Júlíus Guðni Antonsson, 15.12.2010 kl. 08:38
Væntanlega ertu ekki pabbi.
Mikið sjálfhverfari rök hef ég ekki rekist á. Velferð almennings skal sem sagt líða fyrir það að örlítið brot þjóðarinnar komist í golf í september!
Mér finnst svona naflasjónarmið eitt það vitlausasta sem ég sé.
Marta B Helgadóttir, 15.12.2010 kl. 08:44
Þið grillarar og golfarar getið alveg stundað ykkar áhugamál á sama sóltíma og áður en er nú ekki fullmikil frekja af ykkur að ætlast til að allir landsmenn vakni allt að einum og hálfum tíma fyrr en líkamsklukkan segir til um bara fyrir ykkar hobby? Sumir segjast aldrei fá sé bjór fyrir hádegi, en hvaða hádegi? Þetta yrði skelfilegt fyrir þá þar sem þeir verða búnir með fleiri í huganum en áður þegar þeir geta loksins opnað fyrstu flösku. Ég fæ mér reyndar bara þegar mig langar í og skiptir þá ekki hvar er komið hádegi í heiminum. Ekki á lengur við að vísa í viðskiptalegt mikilvægi þess að vera á svipuðum tíma og meginland Evrópu þar sem nú hafa langflestir tekið nýja tækni í sína þjónustu. Hvað má ég og aðrir sem erum með viðskipti við Asíu segja? Auðvitað á staðaltími að vera sem næst sóltíma. En við Íslendingar teljum okkur svo miklu framar öllum öðrum í alls kyns vísindum að hér hafa menn (meira að segja ófullir) fundið upp verðtryggingu, nokkuð sem öðrum hefur ekki hugkvæmst (ekki einu sinni í vímu)!
Örn Gunnlaugsson, 15.12.2010 kl. 09:03
Marta B. Jú reyndar er ég 2 barna faðir og einmitt þessvegna kynni ég að meta meiri sól úti eftir að ég hef lokið vinnutíma. Fara í sund eða niður á tjörn eftir vinnu með einmitt börnunum.
Börnin vilja líka sól eftir skóla en ekki að við taki myrkur. Skil ekki afhverju það á að stilla sólahringinn af þannig að allir missi af sólinni vegna inniveru.
Varðandi golfið, þá einmitt fara kæru börnin að sofa milli kl 20-21 þá kannski næði maður 9 holum eða svo þar á eftir.
Tel þetta vera eithvað bull með líkamsklukkuna og að vakna í birtu. Frekar vill ég vakna í myrkri og eiga frítíma í sól en að vakna í sól og eiga frítíma í myrkri.
Albert Guðmann Jónsson, 16.12.2010 kl. 22:52
@ Örn.
Ég á ekki grill.
Albert Guðmann Jónsson, 16.12.2010 kl. 22:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.